Fróðleikur og spjall
5.10.2009 11:07:00

Saft úr íslenskum berjum = vitamin í fljótandi formi


Þegar við systkinin vorum lítil þá myndaðist gjarnan biðröð á morgnana fyrir framan saftflöskuna. Fyrst var okkur gefið lýsi og síðan heimalöguð berjasaft til að fá vitamin í kroppinn og taka bragðið af lýsinu. Árin hafa liðið og mamma er enn að fylla flöskurnar af saft. Þegar tengdadæturnar hafa verið með járnskort á meðgöngunni hefur ættmóðirin verið mætt á svæðið með saftflöskuna góðu.

Ég ætla að gefa ykkur uppskrift af tveimur uppáhalds söftunum mínum. Þær eru báðar sérlega einfaldar og fljótlegar, sykurmagnið getið þið minnkað eða aukið allt eftir því hvað ykkur finnst passa ykkar bragðlaukum.

Gangi ykkur sem allra best;)*
Solla

Sólberjasaft
2 ½ dl sólber
1 ½ dl vatn
1 msk agavesýróp eða 2-3 döðlur
Allt sett í blandara og blandað í smá stund. Þá er þetta sigtað, best er að gera það í gegnum spírupoka sem fast í Ljósinu Langholtsvegi 43, það er líka hægt að nota þétt sigti, setjið þetta síðan aftur í blandarann með nokkrum klökum blandið smá stund og drykkurinn er tilbúinn!
Þennan drykk er hægt að geyma á flösku í kæli í nokkra daga en má líka frysta, þá helli ég honum í klakabox og tek svo út eins marga klaka og ég þarf að nota hverju sinni.
Það er upplagt að frysta berjaskammta sem taka mið af hversu mikið magn þið viljið brugga af saft hverju sinni.

ATH – það er hægt að nota rifsber eða bláber í staðin fyrir sólber í þessa saft.

Rifsberja og rauðrófu drykkur
3 dl rifsber
½ meðalstór rauðrófa
3 dl vatn
2 msk agavesýróp eða 4-5 döðlur
Allt sett í blandara og blandað í smá stund. Þá er þetta sigtað, best er að gera það í gegnum spírupoka sem fast í Ljósinu Langholtsvegi 43, það er líka hægt að nota þétt sigti, setjið þetta síðan aftur í blandarann með nokkrum klökum blandið smá stund og drykkurinn er tilbúinn!
Þennan drykk er hægt að geyma á flösku í kæli í nokkra daga en má líka frysta, þá helli ég honum í klakabox og tek svo út eins marga klaka og ég þarf að nota hverju sinni.

Krækiberjasaft
2 ½ dl krækiber
1 dl vatn
2-3 cm biti ferskur engifer

Sett í blandara og blandað vel saman, sigtað í gegnum spírupoka (fæst í Ljósinu Langholtsvegi 43
Njótið;)*

Molar
Vissir þú ………

Að ef þú átt góða safapressu er hægt að pressa safann úr berjunum án þess að nota vatn. Þessi safi verður mjög “konsentreraður” og finnst mér gott að gera smá magn í einu og frysta í klakaboxi. Síðan tek ég út 1-2 klaka, set í blandarann ásamt smá vatni og kannski smá sætu og blanda í smá stund og þá er kominn þessi fíni drykkur.

Að það er mjög þægilegt að eiga til ber í frystinum og setja síðan handfylli eða svo að frosnum berjum út í morgunsjeikinn.

Að það má nýta berjahratið með því að setja það í blandara með vatni, klaka og smá sætuefni og blanda og sigta. Þá eruð þið komin með svalandi berjavatn……

 


meira Til baka